
Fólk getur ekki neitað því að Daníel Deluxe er sleipur andskoti. Hann er það sleipur að hann stakk af til Tyrklands í viku til að fá frið frá þessu rugli. Maður ætti að gera það sama.... því að DNA er úti í Búlgaríu að láta skera sig í framan eins og hann væri lítil verslópjölla og Bent sem hélt því fram að hann breyttist aldrei en síðan orðinn einhver
hipster.Verð að lauma nokkrum NBA youtube links:
Ég trúi ekki að Dirk Nowizki hafi ekki verið fullur þegar
þetta var tekið upp.
Einnig trúi ég ekki að allt Dallas liðið hafi verið á smjörsýru þegar þeir samþykktu
þetta sprellEftir að Avery Johnson þjálfari Mavs hékk svona mikið með 270 strákunum þá hætti hann ekki með
pungur djókið.
Reggie Evans tók annars þetta "pungur" djók
alltof langt.
7 comments
Published Monday, June 05, 2006 by bent.
Þegar ég var 14 ára þá gerði ég stórt verk í árbænum. Nánar tiltekið í Skalla undirgöngunum. Það stóð í nokkur ár þangað til einhver Noem bombaði yfir það.
Djöfull hata ég þennan Noem.
Af og til koma menn inn í þennan graffiti heim og hrista uppí honum. Chance, Trek, Kegr, Ser og fleiri gerðu einmitt það.
En ekkert gat undirbúið undirheima graffsins fyrir hvað kom næst.


ps. þeir á flass.net hljóta að fá Pulitzer verðlaun fyrir
þessa grein.
7 comments
Published Tuesday, May 23, 2006 by noem.

Gústi Aska átti afmæli í gær ásamt ástkonu sinni og öðrum legends. Til hamingju með það. Þá er það spurning hvort það kemur aftur grein um afmælið í Séð og Heyrt og hann lýgur aftur um aldur sinn til að geta rúllað inn á klúbba. Sumarið er greinilega komið þrátt fyrir semi svikara veður, því nú má heyra Ragga Bjarna óma um allan miðbæinn. Fólk talar oft um hluti eins og sumardaginn fyrsta, próflok, eurovision og aðra hluti sem merki um það að sumarið sé loksins komið. Mér finnst reyndar alltaf merki um það að sumarið sé komið þegar maður sér gaurinn sem er á bláum jeppa með bílnúmerinu B 747 rúnta einn um allan miðbæinn með allar rúður niðri blastandi Ragga Bjarna. Ég elska þann gaur. Er einhver með scoop um þann mann?
Spurs með vélmenninu Tim Duncan í fararbroddi eru dottnir úr úrslitakeppninni. Allt stefnir í skemmtilegar viðureignir. http://basketbawful.blogspot.com/ er ein uppáhalds síðan mín í dag. Þar eru alltaf góð scoops í sambandi við NBA. Dirk Nowitkzki raular víst lög með David Hasselhoff þegar hann er í stressi á vítalínunni. Charles Barkley er að skvíla í beinni útsendingu með einhver sms sem Kobe Bryant er senda honum. Núna mun Dallas líklegast komast áfram í úrslitin og þess vegna verð ég að pósta þessari mynd af Dallas kempunum Jóni Arnóri og Rolando Blackman (eitt mest legendary nafn úr nba) chillandi saman.

Í dag, 23 maí, er Íslenski hiphopdagurinn!
Í tilefni af því að Robbi Rapp fæddist á þessum degi þá hafa íslenskir hiphopparar haldið þennan dag hátíðlegan síðan 1997. Seinna meir ukust hátíðarhöldin þegar önnur afmælisbörn dagsins í dag, Bent & KáJoð komust í Hiphop Hall Of Fame.
Þannig að, ef þið sjáið hiphop kött, grípið hann, kyssið og óskið til hamingju með Íslenska hiphopdaginn.
Einhvern veginn svona.
Í tilefni dagsins ætla ég að gefa íslenskum hiphop vinum
þessa mynd sem Danni Deluxe mallaði árið 2002.
KáJoð gef ég lag. (
Bent & 7berg - Tónlist til að slást við (cover))
Rampage fær
þetta myndband af For Yo Mind vol. 1
og svo gef ég sjálfum mér
þetta myndband.
Til hamingju!
ps. Tívolí þátturinn í kvöld er einstaklega skemmtilegur. Ekki missa af honum.
7 comments
Published Monday, May 22, 2006 by DoriDNA.

Þetta hérna er ég, nýbakaður stúdent
9 comments
Published Thursday, May 18, 2006 by DoriDNA.

Got'em by the ropes..
Spæ303 - 8
Spæ403- 8
Stæ103-5
Nat103-7
Stæ203 - 3
Endurtektarpróf í stærðfræði 203 verður á mánudaginn. Ég er búinn að safna saman "The ill math street team" eins og ég kýs að kalla það. Veiðin er hafin, ég verð að ná þessu prófi á mánudaginn. Þá fæ ég stúdents húfu( ég er búinn að tala við P Eyfeld um að gera fitted cap special edition handa mér). Á morgun fer ég í einkatíma og þetta ætti því að smella saman. Carthiefstyle hittingur í kvöld, ég bara kemst ekki. Ekki af því að ég þarf að læra bara vegna þess að mig dreymdi að við værum að fara hittast og kvöldið endaði á andláti okkar allra. Þess vegna ætla ég að vera heima.
Í gær fórum ég og Danni d á Kvennóball. Danni var á járnborðunum á meðan ég hrópaði hvatningarorð í hljóðnemann. Það var gebbað.
Ljóshærða stelpan sem ég var að dansa við er vinsamlegast beðin um að gefa sig fram við afgreiðslu.
Check out these nerds...
Afhverju er hún eins og Conan the Librarian á þessari mynd og afhverju er hann að blása í lúður..
þegar ég er spurður hvaða kikmyndakarakterum í líkist þá svara ég, Porter í Payback og Nico.
En satt að segja er ég meira líkur Daniel í Karate Kid, Papa Doc í 8 Mile og rallaranum sem bjó við hliðina á aðalgaurnum í Office Space.
Ég er algjörlega on a roll þessa dagana. Blátt í jits, skapandi sumarstörf, tívolí og LHÍ.
En til þess að koma þessari færslu frá því ógeði sem er grobb blogg þá læt ég með fylgja
mynd af hundi.